Bryndís Haraldsdóttir
Bryndís Haraldsdóttir
Í gærkvöldi var boðað til fundar í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis í dag, en á honum er út­lend­inga­frum­varp Guðrún­ar Haf­steins­dótt­ur dóms­málaráðherra síðast á dagskrá. Óljóst er hvort afgreiða á málið úr nefndinni þá

Andrés Magnússon

andres@mbl.is

Í gærkvöldi var boðað til fundar í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis í dag, en á honum er út­lend­inga­frum­varp Guðrún­ar Haf­steins­dótt­ur dóms­málaráðherra síðast á dagskrá. Óljóst er hvort afgreiða á málið úr nefndinni þá.

Fundi nefndarinnar var frest­að með skömmum fyrirvara í gær, að sagt var vegna „óvæntrar uppákomu“ en síðan var sagt að „óviðráðan­leg­ar ástæður“ hefðu valdið. Það olli nokkrum titringi í stjórnarliðinu og hvíslað um að Vinstri-grænir vildu enn tefja málið eða beinlínis efna til ágreinings.

Þá þegar hafði spurst út um afhroð flokksins í skoðanakönnun Gallup, sem birt var í gærkvöldi, en miðað við hana dytti flokkurinn af þingi.

Bryndís Haraldsdóttir formaður nefndarinnar sagði hins vegar í samtali við Morgunblaðið að fund­in­um í gær hefði verið frestað vegna ágrein­ings um Mennta­sjóð.

„Það er ekki uppi ágrein­ing­ur inn­an rík­is­stjórn­ar­inn­ar um [frumvarp til út­lend­inga­laga], málið er ekki í ágrein­ingi inn­an nefnd­ar­inn­ar eða milli stjórn­ar­flokk­anna.“

Hún ger­ir ráð fyr­ir að frum­varpið rati úr nefnd­inni í vikunni.

Höf.: Andrés Magnússon