Enska knattspyrnufélagið Manchester City, Englandsmeistari síðustu fjögurra ára, hefur höfðað mál gegn ensku úrvalsdeildinni vegna fjárhagsreglna deildarinnar. Breska dagblaðið The Times greinir frá

Enska knattspyrnufélagið Manchester City, Englandsmeistari síðustu fjögurra ára, hefur höfðað mál gegn ensku úrvalsdeildinni vegna fjárhagsreglna deildarinnar. Breska dagblaðið The Times greinir frá. Forráðamenn félagsins vilja meina að sumar af fjárhagsreglum deildarinnar séu ólögmætar og þá sér í lagi að óheimilt sé að félög fái auglýsingatekjur frá fyrirtækjum sem eigendur félaganna eiga. Fara forráðamenn City fram á að reglan verði lögð niður, sem og að enska úrvalsdeildin greiði félaginu skaðabætur vegna tekjumissis.