Landsliðið Sævar Atli Magnússon er kominn í landsliðshópinn.
Landsliðið Sævar Atli Magnússon er kominn í landsliðshópinn. — Morgunblaðið/Eggert
Åge Hareide landsliðsþjálfari hefur neyðst til að gera breytingu á karlaliðinu sem mætir Englandi og Hollandi í vináttuleikjum í fótbolta á komandi dögum. Orri Steinn Óskarsson getur ekki tekið þátt í leikjunum vegna meiðsla

Åge Hareide landsliðsþjálfari hefur neyðst til að gera breytingu á karlaliðinu sem mætir Englandi og Hollandi í vináttuleikjum í fótbolta á komandi dögum. Orri Steinn Óskarsson getur ekki tekið þátt í leikjunum vegna meiðsla. Í hans stað hefur Sævar Atli Magnússon verið kallaður inn í hópinn. Leika þeir báðir með liðum í dönsku úrvalsdeildinni og áttu gott tímabil, Orri með FC Köbenhavn og Sævar Atli með Lyngby.