Ferðalangar gengu fram á látinn mann í Þórsmörk að kvöldi mánudags. Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir í samtali við Morgunblaðið að ekki sé talið að maðurinn hafi látist með saknæmum hætti
Ferðalangar gengu fram á látinn mann í Þórsmörk að kvöldi mánudags.
Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir í samtali við Morgunblaðið að ekki sé talið að maðurinn hafi látist með saknæmum hætti.
Tekur hann fram að lögreglan á Selfossi rannsaki nú andlátið.
Kveðst Jón Gunnar aðspurður ekki geta tjáð sig nánar um málið eða stöðu rannsóknarinnar.
hng@mbl.is