Haraldur G. Harvey fæddist í Reykjavík 6. júní 1947. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Eir 30. maí 2024.
Móðir hans var Margrét Dórotea Oddsdóttir. Systir hans var Ragnheiður S. Harvey, hún lést 9. mars 2023.
Eiginkona Haraldar var Þóra I. Geirsdóttir.
Sonur hans er Magnús Haraldsson Harvey, í sambúð með Robilyn Graciano, dóttir þeirra Esperanza Jasmine. Dóttir hans er Karitas Haraldsdóttir Harvey, í sambúð með Marende Otieno, dætur Adriana, Naya og Kenya.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju í dag, 6. júní 2024, klukkan 13.
Elsku Halli okkar. Við viljum minnast þín með nokkrum orðum. Við höfum metið vináttu þína mikils og er mikill söknuður í hjörtum okkar er þú kvaddir þessa jarðvist. Vinátta okkar hófst í Mosfellsbæ þar sem við bjuggum í nágrenni við ykkur Þóru og vináttan hélt áfram á Selfossi þar sem báðar okkar fjölskyldur héldu tryggðaböndum saman. Við brölluðum ýmislegt saman. Sumarbústaðaferðir eru okkur í fersku minni og alltaf var stutt í grínið hjá þér. Við söknuðum þessara ferða eftir að þú veiktist af þessum illvíga sjúkdómi. Við minnumst þín með kærleik í hjarta.
Elsku Þóra, Magnús, Karítas, makar og börn, við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur, megi allar góðar vættir vaka yfir ykkur á þessum sorgartímum.
Margrét (Gréta) og Oddur.