Aðrir tónleikarnir í sumardjasstónleikaröð veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu fara fram laugardaginn 8. júní. Þar leiðir píanóleikarinn Sunna Gunnlaugs kvartett sem flytur m.a. lög við ljóð Jóns úr Vör

Aðrir tónleikarnir í sumardjasstónleikaröð veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu fara fram laugardaginn 8. júní. Þar leiðir píanóleikarinn Sunna Gunnlaugs kvartett sem flytur m.a. lög við ljóð Jóns úr Vör. Búast má við bæði hugljúfum ballöðum og „dillandi grípandi latínópusum“, líkt og segir í tilkynningu. Með Sunnu leika þau Marína Ósk Þórólfsdóttir, Nico Moreaux og Scott McLemore. Tónleikarnir hefjast klukkan 15 á Jómfrúartorginu og er aðgangur ókeypis.