Þjálfarinn Vigfús Arnar Jósepsson er hættur störfum hjá Leikni.
Þjálfarinn Vigfús Arnar Jósepsson er hættur störfum hjá Leikni. — Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
Vigfús Arnar Jósepsson hefur sagt upp störfum sem þjálfari karlaliðs Leiknis úr Reykjavík í knattspyrnu. Leiknir er í botnsæti 1. deildarinnar með þrjú stig eftir sex leiki. Leiknisliðið tapaði fyrir Keflavík, 5:0, í fyrrakvöld

Vigfús Arnar Jósepsson hefur sagt upp störfum sem þjálfari karlaliðs Leiknis úr Reykjavík í knattspyrnu. Leiknir er í botnsæti 1. deildarinnar með þrjú stig eftir sex leiki. Leiknisliðið tapaði fyrir Keflavík, 5:0, í fyrrakvöld. Vigfús var lengi vel leikmaður Leiknis og tók við liðinu í annað sinn í nóvember 2022. Á síðustu leiktíð komst Leiknir í umspil um sæti í Bestu deildinni en tapaði fyrir Aftureldingu í tveimur undanúrslitaleikjum.