Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson verður ekki með Alba Berlin í úrslitarimmu liðsins gegn Bayern München um Þýskalandsmeistaratitilinn í körfubolta. Martin missti af oddaleiknum gegn Chemnitz í gærkvöld þar sem Berlínarliðið tryggði sér sæti í úrslitum
Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson verður ekki með Alba Berlin í úrslitarimmu liðsins gegn Bayern München um Þýskalandsmeistaratitilinn í körfubolta. Martin missti af oddaleiknum gegn Chemnitz í gærkvöld þar sem Berlínarliðið tryggði sér sæti í úrslitum. Martin glímir við vöðvameiðsli á kálfa og greindi félagið frá því í gær að hann myndi ekki spila meira á þessu tímabili. Martin átti stórleik í fjórða leik liðanna.