Elskar að valda usla.
Elskar að valda usla. — IMDB/Rose Prouser
Drama Ein þekktasta söngkona heims, Britney Spears, var nýverið í Las Vegas, en þar sást hún á gangi með sínum fyrrverandi, Jason Trawick. Þau kynntust og byrjuðu í sambandi árið 2009 þegar Trawick var umboðsmaður Spears

Drama Ein þekktasta söngkona heims, Britney Spears, var nýverið í Las Vegas, en þar sást hún á gangi með sínum fyrrverandi, Jason Trawick. Þau kynntust og byrjuðu í sambandi árið 2009 þegar Trawick var umboðsmaður Spears. Þau trúlofuðu sig árið 2011 en hættu saman aðeins tveimur árum síðar og ekkert varð af hjónabandi. Spears fullyrti þó að þau yrðu vinir áfram. Þau segjast einungis hafa verið að rifja upp gamla tíma sem vinir í Las Vegas. Britney hefur lengi verið þekkt fyrir að flakka á milli kærasta og slá sér upp með hinum ólíklegustu mönnum, en hún hefur nú þegar, 42 ára að aldri, skilið við þrjá eiginmenn.