Náttúran Tumi Magnússon tekst á við náttúruna í listaverkinu „Hringrás“.
Náttúran Tumi Magnússon tekst á við náttúruna í listaverkinu „Hringrás“.
Listsýning Tuma ­Magnússonar Hringrás verður opnuð í Listasafni Íslands í dag, í sal tvö. Listaverkið „Hringrás“ verður frumsýnt á sýningunni en um ræðir 14 rása vídeó- og hljóð­innsetningu

Listsýning Tuma ­Magnússonar Hringrás verður opnuð í Listasafni Íslands í dag, í sal tvö. Listaverkið „Hringrás“ verður frumsýnt á sýningunni en um ræðir 14 rása vídeó- og hljóð­innsetningu. Í fréttatilkynningu kemur fram að í verkinu komi saman allar þær ólíku vinnu­aðferðir sem Tumi hefur ­tileinkað sér á listamannsferli sínum. Þá takist hann á við náttúruna á óvanalegan hátt. „Í verkinu kallar Tumi fram óvænta fleti á kunnuglegum fyrirbærum sem kveikir ný hugrenningatengsl hjá áhorf­andanum,“ segir í tilkynningu. „Hann skeytir saman ólíkum fyrirbærum, togar í sundur, snýr upp á, vinnur með ólíkan hraða og leggur að jöfnu eitthvað örsmátt og annað gríðarstórt. Hann veltir fyrir sér hvað það tekur langan tíma að fara frá einum stað til annars og hraðanum sem þarf til að komast á áfangastað. Hann veltir einnig fyrir sér hvernig við skynjum samspil þessara þátta í rýminu – hraða og tíma.“ Listsýningin fer fram í tengslum við Listahátíð í Reykjavík.