Rusl Eins og sjá má á myndinni var hjólhýsi skilið eftir á svæðinu þegar byggðin var rýmd. Vonast er til að búið verði að farga öllu rusli í sumar.
Rusl Eins og sjá má á myndinni var hjólhýsi skilið eftir á svæðinu þegar byggðin var rýmd. Vonast er til að búið verði að farga öllu rusli í sumar. — Ljósmynd/Jón Sigursteinn Gunnarsson
Ekki er búið að farga öllu því rusli sem skilið var eftir í hjólhýsabyggðinni í Þjórsárdal. Byggðin var rýmd sumarið 2021 og fengu leigjendur frest fram á haust til að fjarlægja muni sína. Hreinn Óskarsson, sviðstjóri þjóðskóga hjá ríkisstofnuninni…

Ekki er búið að farga öllu því rusli sem skilið var eftir í hjólhýsabyggðinni í Þjórsárdal.

Byggðin var rýmd sumarið 2021 og fengu leigjendur frest fram á haust til að fjarlægja muni sína.

Hreinn Óskarsson, sviðstjóri þjóðskóga hjá ríkisstofnuninni Land og skógur, segir að ekki hafi allir leigjendur haft tök á að fjarlægja eigur sínar. Því hafi hreinsunarverkefnið lent á Skógræktinni, sem sameinaðist Landgræðslunni í nýrri stofnun, sem heitir Land og skógur, í byrjun árs.

Hreinn segir mikið rusl hafa verið skilið eftir í Þjórsárdal, meðal annars hjólhýsi, pallar og skjólveggir. Þá hafi tugir gáma verið fylltir síðustu tvö ár, ruslið flokkað og því ekið til förgunar. Nú séu hins vegar komnir gámar á svæðið og sé stefnt að því að ljúka hreinsun svæðisins í sumar. ingathora@mbl.is