Norður ♠ 53 ♥ G92 ♦ ÁKDG ♣ ÁKDG Vestur ♠ KDG742 ♥ 1076 ♦ 10973 ♣ – Austur ♠ 1098 ♥ D854 ♦ 5 ♣ 108632 Suður ♠ Á6 ♥ ÁK3 ♦ 8642 ♣ 9754 Suður spilar 6G

Norður

♠ 53

♥ G92

♦ ÁKDG

♣ ÁKDG

Vestur

♠ KDG742

♥ 1076

♦ 10973

♣ –

Austur

♠ 1098

♥ D854

♦ 5

♣ 108632

Suður

♠ Á6

♥ ÁK3

♦ 8642

♣ 9754

Suður spilar 6G.

„Hérna er úrspilsþraut í tilefni dagsins.“ Magnús mörgæs þuldi upp sagnir: Opnun á 2♠ í vestur (veikir tveir), dobl í norður, 3♠ í austur, 3G í suður og 6G í norður. Spaðakóngur út.

„Þetta er meiri spegillinn.“ Óskar ugla var kominn af stað: „En ókei. Við drepum strax, tökum alla láglitaslagina og sendum vörnina inn á spaða – að því gefnu, auðvitað, að báðir haldi í þrjú hjörtu og einn spaða.“

Þetta er alveg rétt greining hjá Óskari. Vestur þarf að eiga hjartatíu og austur hjartadrottningu. Ef annar hvor fer niður á tvíspil í hjarta er auðvelt að lesa stöðuna og negla viðkomandi lykilspil.

„Í tilefni dagsins?“

„Ja, ég sagði bara svona.“