Kristín Sigurrós Markúsdóttir fæddist 4. nóvember 1965. Hún lést 11. maí 2024.

Kristín var jarðsungin 31. maí 2024.

Elsku besta amma mín.

Þú varst kletturinn minn og allra sem stóðu þér næst.

Þú gafst svo mikið af þér og gerðir allt sem þú gast fyrir mig og þá sem þér þótti vænt um.

Það mun enginn geta komið í þinn stað og fyllt upp í þann stóra part sem þú átt í hjarta mínu.

Umhyggjan frá þér var mér allt, spjallstundirnar okkar skiptu mig öllu máli og tímarnir sem ég eyddi með þér eru ómetanlegir.

Við gátum hlegið endalaust og gert alls konar vitleysu saman. Það vantaði svo sannarlega aldrei upp á hugmyndaflugið, okkur datt ein vitleysan í hug á eftir annarri.

Ég kann að meta allt sem við gerðum saman og er einstaklega þakklát fyrir þann tíma sem ég fékk með þér.

Minningarnar mínar af okkur munu lifa og verða sagðar sem sögur fyrir þá sem ekki fengu tækifæri til þess að kynnast þér.

Ég veit að þú munt veita mér og þeim sem þér var annt um styrk þegar við þurfum á því að halda, eins og þú hefur alltaf gert.

Elsku amma Stína, þú hefur alltaf verið og verður alltaf stór partur af mínu lífi.

Þín

Aníta Rán.