Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir að úrskurðarnefnd um upplýsingamál (ÚNU) veiti umboðsmanni upplýsingar um stöðu og fjölda mála sem hafa borist nefndinni á árinu, um málsmeðferðartíma o.fl.
Umboðsmaður hefur jafnframt óskað eftir skýringum á því að úrskurðum nefndarinnar virðist hafa fækkað og málsmeðferðartími lengst hjá nefndinni á undanförnum árum. Fram kemur að meðalmálsmeðferðartími nefndarinnar hefur ekki verið lengri í átta ár og jafnframt hefur úrskurðum einnig fækkað töluvert á undanförnum árum.
Morgunblaðið og mbl.is hafa að undanförnu flutt fréttir af því að málsmeðferðartími nefndarinnar sé nokkuð langur. Í erindi umboðsmanns kemur fram að málsmeðferðartíminn var að meðaltali 241 dagur frá kæru til úrskurðar á seinasta ári. „Hefur hann því lengst nokkuð frá fyrri árum og hefur ekki verið lengri frá 2016 […],“ segir í bréfi umboðsmanns til nefndarinnar.
Í frétt um málið á vef umboðsmanns segir að hann hafi fylgst með afgreiðslutíma nefndarinnar allt frá árinu 2011 og að forsætisráðherra hafi verið bent á annmarka þar að lútandi sem bæta þyrfti úr.
„Í skýrslu frá forsætisráðherra um störf nefndarinnar á síðasta ári kemur fram að hún hafi kveðið upp 46 úrskurði í fyrra sem er umtalsvert minna en undanfarin ár, þar sem t.a.m. 102 voru kveðnir upp árið 2020,“ segir í umfjöllun umboðsmanns.
Biður umboðsmaður nefndina að svara þessu fyrir 27. júní nk. omfr@mbl.is