Tveir góðir Pierce og Shaq á vellinum.
Tveir góðir Pierce og Shaq á vellinum.
Boston Celtics eru komnir í vænlega stöðu gegn Dallas Mavericks, hafa unnið tvo fyrstu leikina í úrslitaseríunni í bandaríska körfuboltanum og finna lyktina af fyrsta titlinum í 16 ár. Í útsendingum frá körfuboltaleikjum staldrar myndavélin iðulega við nafntogaða gesti og aðra fugla í stúkunni

Karl Blöndal

Boston Celtics eru komnir í vænlega stöðu gegn Dallas Mavericks, hafa unnið tvo fyrstu leikina í úrslitaseríunni í bandaríska körfuboltanum og finna lyktina af fyrsta titlinum í 16 ár.

Í útsendingum frá körfuboltaleikjum staldrar myndavélin iðulega við nafntogaða gesti og aðra fugla í stúkunni. Segja má að útsendingin breytist í fuglaskoðun þegar boltinn er ekki í leik.

Jack Nicholson er sennilega frægasti aðdáandi Los Angeles Lakers og Spike Lee mættir yfirleitt vel gallaður á alla leiki New York Knicks.

Þegar Boston og Dallas áttust við í Garðinum í Boston aðfaranótt mánudags sátu félagarnir Shaquille O'Neal og Paul Pierce hlið við hlið. Shaq hallaði sér aftur í bláum jakkafötum með svört sólgleraugu á meðan Pierce var í æfinga­galla og með svo miklar gullkeðjur um hálsinn að hann virtist ekki geta setið uppréttur.

Pierce varð meistari með Celtics síðast þegar liðið hampaði titlinum, 2008. Shaq spilaði með Boston eina vertíð á meðan Pierce var enn í liðinu þannig að þeir eru fyrrverandi samherjar í baunabænum.

Leikarinn Mark Wahlberg er einnig iðinn við að mæta á leiki með Boston og líka má nefna félagana Matt Damon og Ben Affleck.

Höf.: Karl Blöndal