Norður
♠ Á103
♥ D732
♦ G10
♣ KDG10
Vestur
♠ G6
♥ 865
♦ ÁD8752
♣ 94
Austur
♠ KD9842
♥ –
♦ 43
♣ Á7653
Suður
♠ 87
♥ ÁKG1094
♦ K96
♣ 82
Suður spilar 4♥.
„Öll vita að tveir plús tveir eru fjórir. Flest, alla vega.“ Gölturinn var í messustuði og fuglarnir settu sig í þolinmóðar stellingar: „En hversu mörg vita hvað tveir plús X eru?“
„Ekki mörg,“ töldu fuglarnir, og vissu varla hvort þeir ættu von á fyrirlestri í málfræði eða algebru. Suður verður sagnhafi í 4♥ eftir innákomu austurs á spaða. Vestur kemur út með spaðagosa, sem sagnhafi drepur strax og spilar laufi.
Vörnin getur greinilega tekið fjóra slagi – það er jafn augljóst og að tveir plús tveir eru fjórir. En austur ruglaðist í samlagningunni, drap á laufás og spilaði tvisvar spaða í von um ♥G10x í vestur eða eitthvað þvíumlíkt. „Reikniblinda,“ fullyrðir Gölturinn: „Hjartastyrkur suðurs er X-ið í dæminu. Sagnhafi byrjar á laufinu af því hann óttast ekki uppfærslu. Trompið er ÞÉTT.“