Faxaflóahafnir Skemmtiferðaskipið Fridtjof Nansen var fyrst skipa landtengt rafmagni á Miðbakka í Faxaflóahöfn um helgina.
Faxaflóahafnir Skemmtiferðaskipið Fridtjof Nansen var fyrst skipa landtengt rafmagni á Miðbakka í Faxaflóahöfn um helgina. — Ljósmynd/Kay Fochtmann
Skemmtiferðaskipið Fridtjof Nansen var um helgina landtengt rafmagni á Miðbakka í Faxaflóahöfn fyrst skipa. Landtengingin var samstarfsverkefni Faxaflóahafna og norsku skipaútgerðarinnar Hurtigruten Expeditions sem gerir Fridtjof Nansen út

Birta Hannesdóttir

birta@mbl.is

Skemmtiferðaskipið Fridtjof Nansen var um helgina landtengt rafmagni á Miðbakka í Faxaflóahöfn fyrst skipa.

Landtengingin var samstarfsverkefni Faxaflóahafna og norsku skipaútgerðarinnar Hurtigruten Expeditions sem gerir Fridtjof Nansen út.

Talið er að með landtengingunni sparist hátt í 6.000 lítrar af dísilolíu en Karin Strand, varaforseti Hurtigruten Expeditions, sagði í samtali við mbl.is að landtengingin væri jákvætt skref í umhverfismálum og með henni væri verið að vernda heilsu borgarbúa.

Öll skip landtengd

„Með því að styðjast við rafmagn í landtengingunni brennir skipið ekki olíu á meðan það er í höfn. Rétt eins og þegar flugvél lendir er slökkt á flugvélinni og það kemur ekkert flugeldsneyti út. Það sama á við hér. Svo með þessu verða loftgæðin miklu meiri í Reykjavík,“ segir Karin.

Karin telur að á næstu 10-15 árum verði öll skemmtiferðaskip landtengd við stærstu hafnir Evrópu og Bandaríkjanna.

Evrópusambandið hefur hins vegar sett það skilyrði fyrir hafnir sem heyra undir lögsögu sambandsins að vera tilbúnar með landtengingar með rafmagni fyrir öll skip fyrir árið 2030.

Mikilvægt skref

Ekki er um að ræða fyrsta skemmtiferðaskipið sem landtengt er við rafmagn í Faxaflóahöfn en í ágúst í fyrra var minna skip, sömuleiðis frá Hurtigruten Expeditions, landtengt í Faxagarði. Faxagarður tekur við minni skemmtiferðaskipum, en Miðbakki við þeim stærri.

Sigurður Jökull Ólafsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna og formaður Cruise Iceland, sagði í samtali við mbl.is að um mikilvægt skref væri að ræða fyrir Faxaflóahafnir og að með landtengingunni væri verið að auka loftgæði borgarbúa til muna.

„Fyrir Faxaflóahafnir er þetta mikilvægt skref, sérstaklega fyrir umhverfismálin. Við höfum horft lengi til Norðmanna, þeir eru mjög framarlega í þessum málum og gera miklar gæðakröfur,“ sagði Sigurður.

Höf.: Birta Hannesdóttir