Erlendir ferðamenn eru um þessar mundir að gista skemur og eyða minna af peningum hér á landi. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans. Á fyrstu fimm mánuðum ársins komu 3,9% fleiri erlendir ferðamenn til Íslands en á sama tíma í fyrra.
Á móti hefur skráðum gistinóttum fækkað um hálft prósent á fyrstu fjórum mánuðum ársins frá sama tímabili í fyrra og að sama skapi hefur kortavelta erlendra ferðamanna á föstu gengi dregist saman um tæplega 2% á milli ára.
Síðasta ár var metár í ferðaþjónustu á flesta mælikvarða þó svo ekki hafi tekist að slá fjöldametið frá árinu 2018.
Neysluhegðun ferðmanna er orðin líkari því sem hún var á toppi síðustu ferðamannasveiflu á árunum fyrir faraldurinn.