Atli og Gabrielle Lacerda kynntu nýja lagið sitt, Change My Mind, í þætti Heiðars Austmann, Íslenskri tónlist. Í þættinum gerir hann nýrri tónlist hátt undir höfði. „Lagið var samið af okkur tveimur á heimili okkar í London, en við stundum bæði nám þeim megin við hafið
Atli og Gabrielle Lacerda kynntu nýja lagið sitt, Change My Mind, í þætti Heiðars Austmann, Íslenskri tónlist. Í þættinum gerir hann nýrri tónlist hátt undir höfði. „Lagið var samið af okkur tveimur á heimili okkar í London, en við stundum bæði nám þeim megin við hafið. Lagið fjallar um ástarsorgina sem fylgir því að upplifa sig óelskaðan í sambandi og þá örvæntingu sem fylgir því að bíða eftir að hinn aðilinn taki sig saman og gefi þér þá athygli sem þú þarft,“ segja Atli og Gaby í kynningunni á laginu. Lestu meira á K100.is.