Samstarf Það styttist í Þjóðhátíð.
Samstarf Það styttist í Þjóðhátíð.
Icewear verður einn af aðalstyrktaraðilum Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum í ár og næsta ár. Fyrirtækið mun framleiða fatnað og annan varning sérmerktan hátíðinni og verður hann til sölu í Dalnum. Vörurnar verða kynntar á næstu vikum í vefverslunum Icewear

Icewear verður einn af aðalstyrktaraðilum Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum í ár og næsta ár. Fyrirtækið mun framleiða fatnað og annan varning sérmerktan hátíðinni og verður hann til sölu í Dalnum. Vörurnar verða kynntar á næstu vikum í vefverslunum Icewear. Kemur þetta fram í tilkynningu frá ÍBV.

Í tilkynningunni segist Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður þjóðhátíðarnefndar ÍBV, vera spenntur fyrir samstarfinu og jafnframt þakklátur fyrir stuðninginn. Þjóðhátíð í Eyjum sé mikilvæg fjáröflun fyrir allt íþróttastarf í Vestmannaeyjum.

Heiðar Þór Aðalsteinsson framkvæmdastjóri Icewear segist stoltur af samstarfinu og hlakkar mjög til að sýna gestum Dalsins hvað fyrirtækið hefur upp á að bjóða.

„Við hjá Icewear ætlum að gera þetta vel og sjáum fram á spennandi samstarf. Þarna koma saman tvö sterk og rótgróin vörumerki þar sem Þjóðhátíð og Icewear eru og við erum alveg sannfærð um að út úr því komi eitthvað mjög skemmtilegt,“ er haft eftir Heiðari í tilkynningunni.