Sjöfn Þórðardóttir
sjofn@mbl.is
Í tilefni þess og 80 ára afmælis lýðveldisins 17. júní næstkomandi deilir Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, yfirmatreiðslumaður ION hótels og þjálfari íslenska kokkalandsliðsins, með lesendum Morgunblaðsins uppskriftinni að sínum uppáhaldshamborgara.
Snædís hefur svo sannarlega látið til sín taka síðastliðið ár og sýnt hversu hæfileikarík og megnug hún er á sínu sviði. Hún er listakokkur en hefur líka ástríðu fyrir að elda einfaldan og góðan mat og sérstaklega að grilla á sumrin. Þá koma hamborgararnir sterkir inn.
Velja hamborgarabuff með hærri fituprósentu
„Ég er algjör hamborgaragella, kolagrillaður hamborgari er ómótstæðilega góður og er mitt uppáhald. Það þarf ekki að vera flókið að gera góðan hamborgara, en aðalatriðið fyrir mitt leyti er að hamborgarabrauðið sé mjúkt og gott og alls ekki of þungt í sér. Síðan þurfa hamborgarabuffin að vera góð, mér finnst best að velja hamborgara í kjötbúðum og þá velja buff með aðeins hærri fituprósentu og í stærri kantinum eða um 140-150 gramma buff, þau eru best. Þá verða hamborgarabuffin mun meira djúsí og eru í minni hættu að verða seig og síðan er það osturinn, veislukosturinn. Ég vil hafa mikinn ost á mínum hamborgara og vel að vera með tvær tegundir af osti ofan á hamborgaranum mínum. Fyllinguna í hamborgarann er ávallt hægt að leika sér með en þessi uppskrift að mínum uppáhaldshamborgara, sem ég kalla gjarnan „got to“-hamborgarann“, er með allt sem mér finnst best að setja ofan á hann og milli,“ segir Snædís og er komin með vatn í munninn eftir hamborgaraspjallið.
Kolagrillaður hamborgari
að hætti Snædísar
Fyrir 4
4 stk. kartöflubrauð (Snædís notar kartöflubrauðin frá Myllunni)
4 stk. 150 g nautahamborgarar
4 sneiðar Maribó-ostur
4 sneiðar Tindur-ostur
100 g steikt pancetta
Meðlæti á hamborgarana
little Gem, salat, eftir smekk
pikkluð gúrka
þunnt skornir tómatar
rauðlaukssulta (uppskrift fyrir neðan)
trufflumajónes (uppskrift fyrir neðan)
Steikt pancetta
Byrjið á því að kveikja upp í kolagrillinu eða gasgrillinu, gott að hafa grillið vel heitt þegar hamborgararnir eru grillaðir. Útbúið síðan trufflumajónesið og rauðlaukssultuna sem eiga að fara á hamborgarana. Takið síðan til meðlætið og hafið klárt til að setja á hamborgarana þegar búið er að grilla þá. Þegar grillið er orðið funheitt er lag að grilla hamborgarana og krydda til eftir smekk. Setjið ostsneiðarnar ofan á hamborgarana þegar þið snúið þeim við, eina af Maribó-ostinum og eina af Tindi á hvern hamborgara. Þegar osturinn er bráðinn ætti hamborgarinn að vera tilbúinn. Hitið brauðin aðeins á grillinu, leggið þá á hvolf á grillið. Gott að setja ofan á grind ef hún er til staðar. Passið að brenna ekki brauðin, rétt hita þau til að fá áferðina og ilminn af kolunum. Setjið síðan hamborgarann saman eftir ykkar höfði, þar sem trufflumajónesið og rauðlaukssultan fá að njóta sín. Berið fram og njótið í góðum félagsskap.
Rauðlaukssulta
1 stk. rauðlaukur
330 ml Bríó-bjór
40 g sojasósa
100 g púðursykur
Skerið rauðlaukinn í þunnar sneiðar og svitið í potti með smá olíu. Bætið við bjór og púðursykri og látið krauma á miðlungshita í um það bil 10 mínútur. Setjið næst sojasósuna út í og látið sjóða niður í um það bil 3-5 mínútur.
Trufflumajó
4 msk. truffluolía
200 g majónes að eigin vali
½ stk. sítróna, safinn
ferskur graslaukur, saxaður, eftir smekk
salt eftir smekk
Blandið öllu hráefninu saman í skál og hrærið vel og smakkið til með salti.