Lakers Jerry West var tekinn í frægðarhöll NBA árið 1980.
Lakers Jerry West var tekinn í frægðarhöll NBA árið 1980. — AFP/Omar Rawlings
Jerry West, einn besti körfuboltamaður heims á árum áður, er látinn, 86 ára að aldri. West varð meðal annars ólympíumeistari með Bandaríkjunum árið 1960 og NBA-meistari með Los Angeles Lakers árið 1972

Jerry West, einn besti körfuboltamaður heims á árum áður, er látinn, 86 ára að aldri. West varð meðal annars ólympíumeistari með Bandaríkjunum árið 1960 og NBA-meistari með Los Angeles Lakers árið 1972. West, sem spilaði stöðu bakvarðar, lék með Lakers í 14 ár, frá 1960 til 1974, og var eftir það þjálfari liðsins í þrjú ár, frá 1976 til 1979, en síðan framkvæmdastjóri félagsins um árabil og það var mjög sigursælt með hann við stjórnvölinn.