Hornafjarðarfljót Framkvæmdir við brúa- og vegagerð í fullum gangi.
Hornafjarðarfljót Framkvæmdir við brúa- og vegagerð í fullum gangi. — Ljósmynd/Sigurjón Andrésson
Ólafur E. Jóhannsson oej@mbl.is Kostnaður Vegagerðarinnar vegna framkvæmda við Hornafjarðarfljót hefur farið fram úr gildandi fjárheimildum Alþingis svo milljörðum skiptir, en í aðgerðaáætlun samgönguáætlunar sem tekur til áranna 2020 til 2024 er gert ráð fyrir framkvæmdafé til verkefnisins upp á 4,9 milljarða á tímabilinu.

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

Kostnaður Vegagerðarinnar vegna framkvæmda við Hornafjarðarfljót hefur farið fram úr gildandi fjárheimildum Alþingis svo milljörðum skiptir, en í aðgerðaáætlun samgönguáætlunar sem tekur til áranna 2020 til 2024 er gert ráð fyrir framkvæmdafé til verkefnisins upp á 4,9 milljarða á tímabilinu.

Þegar ákveðið var að ráðast í verkefnið var gert ráð fyrir samfjármögnun þess, ríkissjóðs annars vegar og verktaka hins vegar og miðað við jafna kostnaðarskiptingu, en hvor aðili átti að leggja til helming fjárhæðarinnar, þ.e. 2,450 milljarða, en hlut verktakans átti að fjármagna með veggjöldum.

Enginn verktaki fékkst til þess að taka að sér verkið á þeim grundvelli, en eigi að síður var farið af stað.

Heildarkostnaður áætlaður níu milljarðar

Áætlaður heildarkostnaður er nú um 9 milljarðar skv. upplýsingum frá Vegagerðinni, en hann stendur nú í 3,5 milljörðum. Áætlað er að framkvæmt verði fyrir 4 milljarða alls á þessu ári, en hluti af fyrrgreindum 3,5 milljörðum hefur fallið til í ár.

„Áætlaður framkvæmdakostnaður er nú milljörðum meiri en leit út fyrir upprunalega og ekki hefur verið gengið frá því hvernig standa á að gjaldtöku,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson alþingismaður sem sæti á í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, en hann er einnig er 1. varaformaður fjárlaganefndar.

„Eins og dæmið lítur út núna þegar engin gjaldtaka hefur komið til og ef klára á fjármögnun verkefnisins með sama hætti, þ.e. úr samgönguáætluninni, þá segir það sig sjálft að í verkefnið er verið að draga fé út úr henni frá öðrum verkefnum,“ segir Njáll Trausti.

Reyna að átta sig

Hann segir að umhverfis- og samgöngunefnd og fjárlaganefnd séu að reyna að átta sig á stöðunni, þ.e. hvort Alþingi hafi gefið heimild til þeirrar umframeyðslu sem orðin er í verkefnum Vegagerðarinnar sem Njáll Trausti telur að sé 5-6 milljarðar og undir það tekur Jón Gunnarsson alþingismaður.

„Við erum að reyna að átta okkur á þessari stöðu og erum að kalla eftir upplýsingum, en þetta er staðan eins og hún blasir við okkur í dag,“ segir Njáll Trausti.

Hefur þú áhyggjur af stöðu þessara mála og meðferð almannafjár?

„Já, ég hef það,“ segir Njáll Trausti.

Höf.: Ólafur E. Jóhannsson