Flatarmál hótela og annarra gistirýma hefur aukist mikið á undanförnum árum. Alls bættust tæplega 27 þúsund fermetrar við hótel og önnur gistirými á landinu á seinasta ári. Um seinustu áramót voru heildarfermetrar allra hótela og gistirýma landsins…

Flatarmál hótela og annarra gistirýma hefur aukist mikið á undanförnum árum. Alls bættust tæplega 27 þúsund fermetrar við hótel og önnur gistirými á landinu á seinasta ári. Um seinustu áramót voru heildarfermetrar allra hótela og gistirýma landsins samtals 757 þúsund talsins samkvæmt samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) um fermetrafjölda atvinnuhúsnæðis á landinu.

Á síðustu 20 árum hefur fermetrafjöldi hótela og annarra gistirýma aukist um 514 þúsund fermetra sem er 211% aukning. Á sama tíma er til dæmis allt vörugeymslurými á landinu 215 þúsund fermetrum stærra í dag en það var á árinu 2004 og hefur stækkað um 31% á tveimur áratugum skv. tölum HMS.

Fram kemur í umfjöllun HMS að fermetrum sem lagðir eru undir gistirými hefur fjölgað um 84 prósent á síðasta áratug. „Til samanburðar hefur fermetrum fyrir annað atvinnuhúsnæði fjölgað um 12 prósent á sama tíma,“ segir þar. Frá 2013 hafa því um 346 þúsund fm bæst við gististaðina.

Stækkun og fjölgun hótela og annarra gististaða á landinu hefur verið mismikil milli ára. Á einu ári var fermetrafjölgunin mest á árinu 2016 þegar tæplega 60 þúsund fermetrar bættust við gistirými á landinu. Heldur dró svo úr fjölguninni á næstu árum þar á eftir en árið 2021 sker sig úr en þá fækkaði fermetrum gistirýmis á hótelum og öðrum gististöðum um 20 þúsund á einu ári. „Á árinu 2022 fjölgaði svo fermetrum gistirýma um 34 þúsund talsins, en fjölgunin nam um 27 þúsund fermetrum í fyrra. Mest var fjölgunin á Norðurlandi eystra, en þar jókst flatarmál gistirýma um 14 prósent. Á Suðurnesjum fækkaði hins vegar fermetrum hjá gistirýmum um 3 prósent,“ segir í umfjöllun HMS, sem birt var á vefsíðu stofnunarinnar í gær.

HMS hefur einnig tekið saman tölur um fjölda gististaða þar sem fram kemur að alls eru 258 fasteignanúmer skráð undir hótel og gistihús, en fyrir áratug voru þau 147 talsins.

„Aukningin er hlutfallslega meiri í sveitarfélögum umhverfis Reykjavík, en þar hefur fasteignanúmerum fjölgað úr 27 í 45 á tíu árum,“ segir í umfjöllun HMS. omfr@mbl.is

Stærð og fjöldi

Á þriggja ára tímabili (2021-2023) fjölgaði fermetrum hótela og annarra gististaða um tæplega 61 þúsund fm. Á sama tíma fjölgaði fermetrum skrifstofuhúsnæðis um 7.300 fm.

Í desember sl. voru 157 heilsárshótel á landinu samkvæmt tölum Hagstofunnar, 54 hótelíbúðir og 146 gistiheimili starfandi allt árið.