— Morgunblaðið/Eggert
Sólfarið, höggmyndin fræga sem prýðir sjávarsíðuna, er orðið eitt af helstu kennileitum Reykjavíkur. Hinir mörgu angar draumabátsins koma sér vel þegar börn jafnt sem fullorðnir klöngrast upp á verkið til að stilla sér upp fyrir myndir sem munu…

Sólfarið, höggmyndin fræga sem prýðir sjávarsíðuna, er orðið eitt af helstu kennileitum Reykjavíkur. Hinir mörgu angar draumabátsins koma sér vel þegar börn jafnt sem fullorðnir klöngrast upp á verkið til að stilla sér upp fyrir myndir sem munu varðveita minningar erlendra ferðamanna af Íslandsförinni. Sumarið er nú gengið í garð og má því búast við að kennileitið verði fjölsótt næstu vikurnar.