14 Albert Guðmundsson var meðal markahæstu manna A-deildar.
14 Albert Guðmundsson var meðal markahæstu manna A-deildar. — Ljósmynd Genoa
Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er enn og aftur til umfjöllunar í ítölskum fjölmiðlum. Í gær sögðu þeir að enska félagið Tottenham væri í viðræðum við Genoa um kaup á Alberti en samkvæmt þeim vill Genoa fá 30 til 35 milljónir evra, eða í…

Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er enn og aftur til umfjöllunar í ítölskum fjölmiðlum. Í gær sögðu þeir að enska félagið Tottenham væri í viðræðum við Genoa um kaup á Alberti en samkvæmt þeim vill Genoa fá 30 til 35 milljónir evra, eða í kringum fimm milljarða íslenskra króna, fyrir hann. Albert átti mjög gott tímabil með Genoa í vetur og skoraði 14 mörk í A-deildinni þar sem hann varð fimmti markahæsti leikmaður deildarinnar.