Hávaxinn Marek Dolezaj var öflugur með Keflavík í vetur.
Hávaxinn Marek Dolezaj var öflugur með Keflavík í vetur. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Slóvakíski körfuboltamaðurinn Marek Dolezaj hefur skrifað undir nýjan samning við Keflvíkinga og leikur því áfram með þeim á næsta tímabili. Marek var í stóru hlutverki hjá Keflavík í vetur en hann er 26 ára gamall framherji, 2,08 metrar á hæð og kom til Keflvíkinga frá Münster í þýsku B-deildinni

Slóvakíski körfuboltamaðurinn Marek Dolezaj hefur skrifað undir nýjan samning við Keflvíkinga og leikur því áfram með þeim á næsta tímabili. Marek var í stóru hlutverki hjá Keflavík í vetur en hann er 26 ára gamall framherji, 2,08 metrar á hæð og kom til Keflvíkinga frá Münster í þýsku B-deildinni. Hann lék áður með Iraklis í Grikklandi, Ternopil í Úkraínu og Karlovka Bratislava í Slóvakíu. Þá hefur hann leikið með landsliði Slóvakíu.