Petrína Kristín Björgvinsdóttir fæddist 18. desember 1925. Hún lést 24. maí 2024.

Útför hennar fór fram 30. maí 2024.

Elsku langamma. Það er skrítið að þú sért ekki hérna lengur því þú hefur alltaf verið með okkur síðan ég fæddist. Ég man eftir þegar þú passaðir mig og hvað þér fannst gaman að fara í Kringluna. Ég mun aldrei gleyma síðasta samtalinu okkar þar sem þú sagðist elska mig og hvernig þú helst í hönd mína. Hvíldu í friði elsku langamma.

Þín

Eyrún.