ÍBV Róbert Sigurðarson varð Íslandsmeistari með liðinu 2023.
ÍBV Róbert Sigurðarson varð Íslandsmeistari með liðinu 2023. — Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Handknattleiksmaðurinn Róbert Sigurðarson er genginn til liðs við ÍBV á nýjan leik eftir eins árs fjarveru. Róbert varð Íslandsmeistari með ÍBV 2023 og var í stóru hlutverki í varnarleik Eyjamanna en gekk síðan til liðs við Drammen og lék með liðinu í norsku úrvalsdeildinni í vetur

Handknattleiksmaðurinn Róbert Sigurðarson er genginn til liðs við ÍBV á nýjan leik eftir eins árs fjarveru. Róbert varð Íslandsmeistari með ÍBV 2023 og var í stóru hlutverki í varnarleik Eyjamanna en gekk síðan til liðs við Drammen og lék með liðinu í norsku úrvalsdeildinni í vetur. Lið hans endaði í fimmta sæti deildarinnar og komst síðan í undanúrslit í úrslitakeppninni. Róbert ákvað að nýta uppsagnarákvæði í samningi sínum og snúa aftur heim.