Landsliðsmaðurinn Orri Gunnarsson er genginn til liðs við uppeldisfélagið Stjörnuna frá Swans Gmunden í Austurríki. Orri fór til austurríska liðsins fyrir síðasta tímabil en hann lék með Haukum í tvö tímabil fyrir það
Landsliðsmaðurinn Orri Gunnarsson er genginn til liðs við uppeldisfélagið Stjörnuna frá Swans Gmunden í Austurríki. Orri fór til austurríska liðsins fyrir síðasta tímabil en hann lék með Haukum í tvö tímabil fyrir það.
Stjarnan styrkir sig fyrir næstu leiktíð en liðið fékk Bjarna Guðmann Jónsson til sín á dögunum úr Háskólaboltanum. Þá hafa Kristján Fannar Ingólfsson og Júlíus Orri Ágústsson skrifað undir nýjan samning hjá félaginu.