Daniel Brühl í hlutverki Lagerfelds.
Daniel Brühl í hlutverki Lagerfelds. — Hulu
Tíska Þýsk/spænski leikarinn Daniel Brühl fer með hlutverk tískukóngsins Karls Lagerfelds í myndaflokknum Becoming Karl Lagerfeld sem kominn er inn á veiturnar Disney+ og Hulu. Undir eru árin 1972-81 þegar Lagerfeld var að freista þess að hasla sér völl og velgja Yves Saint Laurent undir uggum

Tíska Þýsk/spænski leikarinn Daniel Brühl fer með hlutverk tískukóngsins Karls Lagerfelds í myndaflokknum Becoming Karl Lagerfeld sem kominn er inn á veiturnar Disney+ og Hulu. Undir eru árin 1972-81 þegar Lagerfeld var að freista þess að hasla sér völl og velgja Yves Saint Laurent undir uggum. Á þessum tíma kynntist hann líka ástmanni sínum til fjölda ára, Jacques Bascher. Franska er töluð í þáttunum.