Haukar Steeve Ho You Fat á langan feril að baki í Frakklandi.
Haukar Steeve Ho You Fat á langan feril að baki í Frakklandi. — Ljósmynd/Nikola Krstic
Franski körfuboltamaðurinn Steeve Ho You Fat hefur samið við Hauka um að leika með þeim í úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili en hann kemur til þeirra frá franska B-deildarliðinu Provence. Hann er 36 ára gamall og fæddur í Frönsku Gvæjönu, er…

Franski körfuboltamaðurinn Steeve Ho You Fat hefur samið við Hauka um að leika með þeim í úrvalsdeildinni á næsta keppnistímabili en hann kemur til þeirra frá franska B-deildarliðinu Provence. Hann er 36 ára gamall og fæddur í Frönsku Gvæjönu, er 2,02 metrar á hæð og leikur sem miðherji eða framherji. Ho You Fat á langan feril að baki í tveimur efstu deildum Frakklands, m.a. með Levallois, Roanne, Cholet og Rouen.