KR Þorvaldur Orri Árnason í leik með Njarðvíkingum í vetur.
KR Þorvaldur Orri Árnason í leik með Njarðvíkingum í vetur. — Morgunblaðið/Eggert
Körfuknattleiksmaðurinn Þorvaldur Orri Árnason hefur samið við uppeldisfélag sitt KR um að leika með liðinu á næsta tímabili. Þorvaldur Orri, sem er 21 árs, kemur frá Njarðvík þar sem hann lék á síðasta tímabili, eftir að hafa verið í röðum Cleveland Charge í þróunardeild NBA

Körfuknattleiksmaðurinn Þorvaldur Orri Árnason hefur samið við uppeldisfélag sitt KR um að leika með liðinu á næsta tímabili. Þorvaldur Orri, sem er 21 árs, kemur frá Njarðvík þar sem hann lék á síðasta tímabili, eftir að hafa verið í röðum Cleveland Charge í þróunardeild NBA. Er um gífurlegan liðstyrk að ræða fyrir nýliða KR í úrvalsdeildinni. KR vann 1. deildina á síðasta tímabili og stefnir ótrautt á að festa sig í sessi á meðal þeirra bestu á ný.