Sýningin Regn stendur til 30. júní.
Sýningin Regn stendur til 30. júní.
Sýning myndlistarkonunnar Elínar Helenu Evertsdóttur, sem ber yfirskriftina Regn, verður opnuð í Grafík­salnum í Hafnarhúsinu í dag klukkan 15. Segir í tilkynningu að þar bjóði Elín Helena gestum að stíga inn í hljóðinnsetningu þar sem dropar af…

Sýning myndlistarkonunnar Elínar Helenu Evertsdóttur, sem ber yfirskriftina Regn, verður opnuð í Grafík­salnum í Hafnarhúsinu í dag klukkan 15. Segir í tilkynningu að þar bjóði Elín Helena gestum að stíga inn í hljóðinnsetningu þar sem dropar af öllum stærðum og gerðum hljómi óreiðukennt eða vélrænt. „Það rignir. Hver dropi er í ákveðinni þyngd og í vissri fjarðlægð við næsta. Hvað eru þeir margir, munu þeir sameinast, hversu hratt falla þeir og á hverju lenda þeir? Og hvað ef einn af þeim fer að dansa eftir ósýnilegu vélrænu mynstri?“ Þá kemur einnig fram að hún vinni í hina ýmsa miðla og hafi áhuga á því óvænta í hversdagsleikanum, skynjun og tilfinningum.“

Elín Helena útskrifaðist frá The Glasgow School of Art árið 2005 en sýning hennar mun standa til 30. júní og vera opin milli kl. 12-16.