Quang Le, eða Davíð Viðarsson.
Quang Le, eða Davíð Viðarsson.
Quang Le, eða Davíð Viðarsson, hefur auk manns og konu verið úrskurðaður í tólf vikna farbann að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Fólkið hafði áður setið í gæsluvarðhaldi frá því í mars

Quang Le, eða Davíð Viðarsson, hefur auk manns og konu verið úrskurðaður í tólf vikna farbann að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

„Fólkið hafði áður setið í gæsluvarðhaldi frá því í mars. Þremenningarnir voru þá handteknir í kjölfar umfangsmikilla aðgerða á höfuðborgarsvæðinu og víðar, en tilefni þeirra var rökstuddur grunur um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og grunur um skipulagða brotastarfsemi,“ segir m.a. í tilkynningu frá lögreglunni sem send var út í gær.