Eva Longoria er í kunnuglegu hlutverki.
Eva Longoria er í kunnuglegu hlutverki. — AFP/Loic Venence
Aðþrenging Aðdáendur aðþrengdu eiginkonunnar Evu Longoriu eiga von á góðu en undir lok mánaðarins hefur Apple Tv+ sýningar á nýjum dramaþáttum með kómísku ívafi þar sem hún er í aðalhlutverki. Land of Women nefnast þeir og Longoria leikur eiginkonu…

Aðþrenging Aðdáendur aðþrengdu eiginkonunnar Evu Longoriu eiga von á góðu en undir lok mánaðarins hefur Apple Tv+ sýningar á nýjum dramaþáttum með kómísku ívafi þar sem hún er í aðalhlutverki. Land of Women nefnast þeir og Longoria leikur eiginkonu manns sem framið hefur auðgunarbrot og þannig stofnað allri fjölskyldunni í bráða hættu. Okkar kona er sumsé áfram aðþrengd. Hún flýr í ofboði frá New York til Spánar ásamt dóttur sinni og móður sem ættuð er þaðan. Þar mæta þeim að vonum allskyns gömul leyndarmál.