Dómkvaddir matsmenn meta nú sakhæfi móðurinnar sem er sögð hafa játað að hafa ráðið syni sínum bana á heimili þeirra við Nýbýlaveg í Kópavogi í lok janúar sl. Líklega má vænta niðurstaðna á næstu dögum. Þetta kemur fram í samtali mbl.is við Karl Inga Vilbergsson, saksóknara hjá héraðssaksóknara.
„Dómkvaddir matsmenn eru nú fengnir til að meta sakhæfi og sú vinna stendur enn yfir,“ segir Karl Ingi. Útskýrir hann að um svokallað yfirmat sé að ræða, þ.e. að geðmat hafi verið framkvæmt á meðan málið var í rannsókn en matsmenn leggi nú mat að nýju. Staðfestir Karl Ingi að málið verði tekið fyrir dóm í næstu viku og tekur fram að niðurstöður um sakhæfi konunnar skipti miklu fyrir framgang málsins.
„Það er í sjálfu sér ekkert að fara að gerast þá af því að við erum enn að bíða eftir geðmatinu,“ segir hann. Ekki sé ljóst hvenær niðurstöður liggja fyrir, líkega þó á næstu dögum.