Tónlistarmaðurinn Jacob Collier er sexfaldur Grammy-verðlaunahafi.
Tónlistarmaðurinn Jacob Collier er sexfaldur Grammy-verðlaunahafi.
Listahátíð í Reykjavík lýkur með stórtónleikum Jacobs Colliers í Eldborg annað kvöld, 16. júní, kl. 20. „Ég hef aldrei á ævinni séð aðra eins hæfileika,“ er haft eftir Quincy Jones í tilkynningu frá hátíðinni en tónlist Colliers er sögð lúta sínum eigin lögmálum

Listahátíð í Reykjavík lýkur með stórtónleikum Jacobs Colliers í Eldborg annað kvöld, 16. júní, kl. 20. „Ég hef aldrei á ævinni séð aðra eins hæfileika,“ er haft eftir Quincy Jones í tilkynningu frá hátíðinni en tónlist Colliers er sögð lúta sínum eigin lögmálum. Þar kallist á heimur djassins, sálartónlistar og R&B, popps og jafnvel klassískrar tónlistar.

„Þessi fjölhæfi og einlægi tónlistarmaður þykir engum líkur á sviði og nær magnaðri tengingu við áhorfendur,“ segir einnig um Collier í tilkynningunni. „Hann sló fyrst í gegn fyrir um áratug síðan með eigin útsetningum á þekktum lögum þar sem hann raddaði margfalt með sjálfum sér og lék á öll hljóðfæri. Hann er í dag sexfaldur Grammy-verðlaunahafi sem hefur komið fram með fjölbreyttum hópi tónlistarfólks og nýtur ómældrar virðingar og vinsælda í tónlistarheiminum. Hann hefur unnið með jafn ólíku tónlistarfólki og Hans Zimmer, Coldplay, Brandi Carlile, BTS, Stormzy, Pharrell Williams og Aliciu Keys.“