Stjarna Kylian Mbappé nefbrotnaði í leik Frakklands gegn Austurríki.
Stjarna Kylian Mbappé nefbrotnaði í leik Frakklands gegn Austurríki. — AFP/Ozan Kose
Kylian Mbappé nefbrotnaði í leik Frakklands og Austurríkis í D-riðli Evrópumótsins í knattspyrnu í Düsseldorf í gærkvöldi. Franska knattspyrnusambandið staðfesti fregnirnar eftir leik og skýrði um leið frá því að hann myndi gangast undir aðgerð vegna nefbrotsins

Kylian Mbappé nefbrotnaði í leik Frakklands og Austurríkis í D-riðli Evrópumótsins í knattspyrnu í Düsseldorf í gærkvöldi. Franska knattspyrnusambandið staðfesti fregnirnar eftir leik og skýrði um leið frá því að hann myndi gangast undir aðgerð vegna nefbrotsins. Mbappé gæti misst af næsta leik Frakklands gegn Hollandi næsta föstudagskvöld. Ef hann verður með spilar hann væntanlega með sérhannaða grímu til að hlífa nefinu.