Mótherjar Pablo Punyed og Gylfi Þór Sigurðsson mætast í kvöld.
Mótherjar Pablo Punyed og Gylfi Þór Sigurðsson mætast í kvöld. — Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Einn af stórleikjum tímabilsins í Bestu deild karla í fótbolta er á dagskránni í kvöld þegar Valsmenn fá Víking í heimsókn í tíundu umferð deildarinnar. Þetta er reyndar ellefti leikur beggja liða en fjögur stig skilja þau að í toppbaráttunni

Einn af stórleikjum tímabilsins í Bestu deild karla í fótbolta er á dagskránni í kvöld þegar Valsmenn fá Víking í heimsókn í tíundu umferð deildarinnar.

Þetta er reyndar ellefti leikur beggja liða en fjögur stig skilja þau að í toppbaráttunni. Víkingar eru með 25 stig, Breiðablik 22 og Valur 21 en allt útlit er fyrir að slagurinn um Íslandsmeistaratitilinn standi á milli þessara þriggja félaga sem eru smám saman að skilja sig að frá hinum níu liðum deildarinnar.

Flautað verður til leiks á Hlíðarenda klukkan 20.15 og þarna mætast tvö lið sem hvort um sig hafa aðeins tapað einum leik í deildinni í ár. Valsmenn gegn Stjörnunni í þriðju umferð og Víkingar gegn HK í fimmtu umferð.

Víkingar sakna síns markahæsta leikmanna, Danijels Dejans Djuric, sem er kominn í tveggja leikja bann.

Valsmenn endurheimta hins vegar Gylfa Þór Sigurðsson sem hefur misst af fjórum síðustu leikjum þeirra í deildinni.

Fjórir aðrir leikir fara fram í tíundu umferðinni í kvöld.

Fylkir tekur á móti Vestra í Árbænum. Vestri er með 10 stig í 9. sæti en Fylkir er með 4 stig á botninum.

Stjarnan mætir FH í Garðabæ. FH er með 14 stig í 4. sæti og Stjarnan er með 13 stig í 7. sæti.

ÍA mætir KR á Akranesi. ÍA er með 13 stig í 5. sæti og KR er með 11 stig í 8. sæti.

Fram mætir HK í Úlfarsárdal. Fram er með 13 stig í 6. sæti og HK er með 7 stig í 10. sæti.