Mergð Bílasýningin hefur verið haldin í íþróttahúsinu Boganum undanfarin ár en Einar Gunnlaugsson segir að yfir 300 tæki hafi verið til sýnis í ár. Þá er talið að metaðsókn hafi verið í ár, en fyrsta sýningin var haldin fyrir hálfri öld.
Mergð Bílasýningin hefur verið haldin í íþróttahúsinu Boganum undanfarin ár en Einar Gunnlaugsson segir að yfir 300 tæki hafi verið til sýnis í ár. Þá er talið að metaðsókn hafi verið í ár, en fyrsta sýningin var haldin fyrir hálfri öld. — Mynd/Þorgeir Baldursson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Þetta var þessi árlega bílasýning okkar á 17. júní. Hún hefur verið haldin á 17. júní síðan 1974. Undanfarin ár hefur hún verið haldin inni í íþróttahúsinu Boganum og þetta er stærsta sýning sem við höfum haldið núna þetta ár

Egill Aaron Ægisson

egillaaron@mbl.is

„Þetta var þessi árlega bílasýning okkar á 17. júní. Hún hefur verið haldin á 17. júní síðan 1974. Undanfarin ár hefur hún verið haldin inni í íþróttahúsinu Boganum og þetta er stærsta sýning sem við höfum haldið núna þetta ár. Það eru yfir 300 tæki hérna inni hjá okkur. Hátíðin hefur aldrei verið eins stór,“ sagði Einar Gunnlaugsson, stjórnarformaður Bílaklúbbs Akureyrar, í samtali við Morgunblaðið um bílasýningu klúbbsins sem fór fram þar í bæ í gær.

Sýningin er hluti af bíladögum, hátíð sem haldin er ár hvert á Akureyri, og segir Einar að hátíðin byrji oft með bílasýningunni eða endi á henni – fari það eftir því upp á hvaða vikudag 17. júní ber.

Segir Einar að sýningin sé orðin hálfgert einkenni Akureyrar á 17. júní. Það sé fastur viðburður bæjarbúa auk utanaðkomandi að koma við á bílasýningunni og tekur hann fram að mætingin á sýninguna í gær hafi verið það góð að um mögulegt metár sé að ræða.

„Við eigum nú eftir að fá svona lokatölurnar en aðsóknin er búin að vera algjört met held ég og bíladagarnir í heildina eru búnir að toppa sig í aðsókn á alla viðburði.“

Nefndi Einar að mikil ánægja væri á meðal þeirra sem sáu um hátíðina í ár með gesti hátíðarinnar.

„Ofsaleg mæting en bara rosaleg kurteisi og góð hegðun.“

Höf.: Egill Aaron Ægisson