Reykjavíkurhöfn Fjölnir bundinn við bryggju en verður senn siglt utan.
Reykjavíkurhöfn Fjölnir bundinn við bryggju en verður senn siglt utan. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vísir hf. í Grindavík hefur selt Fjölni GK 157 sem nú fer til Noregs, þar sem nýir eigendur hyggjast nota skipið til þjónustu við olíuiðnaðinn. „Einhver minniháttar pappírsvinna er eftir og formsatriði en svo afhendum við skipið nýjum…

Vísir hf. í Grindavík hefur selt Fjölni GK 157 sem nú fer til Noregs, þar sem nýir eigendur hyggjast nota skipið til þjónustu við olíuiðnaðinn. „Einhver minniháttar pappírsvinna er eftir og formsatriði en svo afhendum við skipið nýjum eigendum, sem verður á allra næstu dögum,“ segir Pétur Hafsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Vísis við Morgunblaðið.

Skipið góða var smíðað í Noregi árið 1968 en var keypt til Íslands tveimur árum síðar. Hefur á löngum ferli verið í útgerð m.a. frá Skagaströnd og Rifi og haft ýmis nöfn. Vísir keypti svo skipið árið 2013. Gerði það út frá Kanada, en tók í flota sinn hér heima árið 2015 og þá varð nafnið Fjölnir til. Á þessum árum hefur skipið reynst afar vel og á það fiskast þúsundir tonna. Skipið kom úr sínum síðasta túr í desember sl.

„Við erum að stokka upp útgerðina,“ segir Pétur Hafsteinn. Framvegis mun Vísir hf. gera út línuskipin Sighvat GK og Pál Jónsson GK og togskipið Jóhönnu GK. Þá hefur fyrirtækið gert úr plastbátana Sævík og Daðey. Nú verður Daðey seld og Sævíkin fær nafnið Fjölnir. Kvóti Vísis hf. á því fiskveiðiári sem hefst 1. september er um 17.000 tonn og ætti sá afli að nást á þeim skipum og bátum sem eftir eru og fyrr eru nefndir. sbs@mbl.is