Saga Kjartansdóttir
Saga Kjartansdóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Quang Le, sem grunaður er um umfangsmikil mansalsbrot, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og skipulagða brotastarfsemi, hefur heimsótt meint fórnarlömb í málinu. Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í mansalsmálum hjá ASÍ, segir það…

Viðar Guðjónsson

vidar@mbl.is

Quang Le, sem grunaður er um umfangsmikil mansalsbrot, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og skipulagða brotastarfsemi, hefur heimsótt meint fórnarlömb í málinu.

Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í mansalsmálum hjá ASÍ, segir það dæmigerða hegðun geranda í svona málum og bendir á að það sé lögreglumál ef reynt er að hafa áhrif á fórnarlömb.

Quang Le, einnig nefndur Davíð Viðarsson, hefur verið umsvifamikill á íslenskum veitingahúsamarkaði og á fasteignir víða um Reykjavík. Hann sat í gæsluvarðhaldi í um 14 vikur, var látinn laus sl. föstudag en er í 12 vikna farbanni. Samkvæmt heimildum mbl.‌is sást hann á veitingastað í miðbænum um liðna helgi þar sem hann heilsaði upp á fyrrverandi starfsmenn sína.

Saga segir ASÍ meðvitað um að Quang Le hafi heimsótt fórnarlömb í málinu. „Við tökum þetta trúanlegt því þetta er þannig séð dæmigert í mansalsmálum að gerandinn reynir að ná aftur tökum á þolandanum. Því kemur þetta okkur ekki á óvart.“

Saga bendir á að hann sé sakaður um að ná tekjum af fólki og vonandi hafi lögregla úrræði til þess að hjálpa þeim sem eru þolendur í málinu.

„Hann er með mikil ítök. Þó að við höfum markvisst verið að vinna í því að skapa traust þolenda til kerfisins hafa gerendur engu að síður mikil ítök eftir áralanga misneytingu,“ segir Saga.

Hún segist ekki hafa upplýsingar um að Quang Le hafi haft í hótunum við meint fórnarlömb í málinu. „En þetta lítur auðvitað út fyrir að vera þannig að viðkomandi er að reyna að hafa áhrif. Það er í það minnsta grunsamlegt ef eitt fyrsta verk meints geranda er að spjalla við vitnin í málinu og mögulega reyna að hafa áhrif á þau. Það er lögreglumál ef svo er,“ segir Saga.