Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, boðar átak í markaðssetningu fyrir ferðamenn. Kostnaðurinn mun hlaupa á hundruðum milljóna króna. Lilja segir tillöguna liggja fyrir ríkisfjármálanefnd en hún kveðst hafa verið að vinna…
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, boðar átak í markaðssetningu fyrir ferðamenn. Kostnaðurinn mun hlaupa á hundruðum milljóna króna.
Lilja segir tillöguna liggja fyrir ríkisfjármálanefnd en hún kveðst hafa verið að vinna síðustu þrjá mánuði, ásamt Ferðamálastofu og Íslandsstofu, að þessu verkefni. Hún vonast til þess að markaðssetningin hefjist sem fyrst. Ferðamálastofa hefur uppfært spá sína um fjölda ferðamanna á árunum 2024 til 2026. Uppfærð spá gerir ráð fyrir færri ferðamönnum en í ársbyrjun.