Tónlistarmennirnir Davíð Þór Jónsson og Eyþór Gunnarsson halda síðkvöldstónleika á sumarsólstöðum í Salnum í Kópavogi. Þeir hafa áður tekið höndum saman í „óbeisluðu spunaflugi við frábærar undirtektir“, segir í tilkynningu

Tónlistarmennirnir Davíð Þór Jónsson og Eyþór Gunnarsson halda síðkvöldstónleika á sumarsólstöðum í Salnum í Kópavogi. Þeir hafa áður tekið höndum saman í „óbeisluðu spunaflugi við frábærar undirtektir“, segir í tilkynningu. „Hér leika þeir á tvo flygla Salarins á bjartasta kvöldi ársins. Ekki missa af þessu undurfallega óvissuferðalagi.“ Tónleikarnir hefjast klukkan 21 í kvöld, fimmtudag 20. júní.