Þýskaland Karólína Lea leikur áfram með Leverkusen.
Þýskaland Karólína Lea leikur áfram með Leverkusen. — Morgunblaðið/Eggert
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, hefur skrifað undir nýjan samning við þýska stórveldið Bayern München sem gildir til loka tímabilsins 2025-26. Karólína Lea hefur hins vegar verið lánuð til Bayer Leverkusen að nýju, en hún…

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, hefur skrifað undir nýjan samning við þýska stórveldið Bayern München sem gildir til loka tímabilsins 2025-26. Karólína Lea hefur hins vegar verið lánuð til Bayer Leverkusen að nýju, en hún lék á láni hjá liðinu á síðasta tímabili og stóð sig vel. Karólína Lea lék alla 22 leiki Leverkusen í þýsku 1. deildinni á síðasta tímabili og skoraði fimm mörk ásamt því að leggja upp sjö.