Fram Rakel Dögg Bragadóttir tekur við starfinu af Einari Jónssyni og verður með Arnar Pétursson landsliðsþjálfara sér við hlið.
Fram Rakel Dögg Bragadóttir tekur við starfinu af Einari Jónssyni og verður með Arnar Pétursson landsliðsþjálfara sér við hlið. — Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir
Rakel Dögg Bragadóttir og Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik, verða næstu þjálfarar kvennaliðs Fram. RÚV greindi frá því í gær að samkomulag væri í höfn við Rakel Dögg og Arnar og að þau myndu fljótlega skrifa undir samninga við handknattleiksdeild Fram

Rakel Dögg Bragadóttir og Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik, verða næstu þjálfarar kvennaliðs Fram.

RÚV greindi frá því í gær að samkomulag væri í höfn við Rakel Dögg og Arnar og að þau myndu fljótlega skrifa undir samninga við handknattleiksdeild Fram.

Rakel Dögg hefur verið aðstoðarþjálfari kvennaliðs Fram undanfarin tvö ár en tekur nú við starfinu af Einari Jónssyni, sem þjálfaði kvenna- og karlalið félagsins á síðasta tímabili en stýrir aðeins karlaliðinu á því næsta. Rakel Dögg verður aðeins önnur konan á eftir Guðríði Guðjónsdóttur sem þjálfar kvennalið Fram.

Arnar hefur þjálfað kvennalandsliðið frá sumrinu 2019 og hefur ekki sinnt félagsliðaþjálfun síðan vorið 2018 er hann gerði karlalið ÍBV að Íslandsmeisturum. Mun Arnar halda áfram sem landsliðsþjálfari samhliða starfi sínu hjá Fram.