Bjarni Benediktsson
Bjarni Benediktsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Hrafnar Óðins í Viðskiptablaðinu sjá margt skrýtið á flögri sínu um heiminn, sérstaklega þó yfir Íslandi. Til dæmis magnþrungna aðgerðaáætlun í loftslagsmálum í hvorki meira né minna en 150 liðum, sem ráðherrar kynntu á dögunum

Hrafnar Óðins í Viðskiptablaðinu sjá margt skrýtið á flögri sínu um heiminn, sérstaklega þó yfir Íslandi. Til dæmis magnþrungna aðgerðaáætlun í loftslagsmálum í hvorki meira né minna en 150 liðum, sem ráðherrar kynntu á dögunum.

Krummarnir krunka að stjórnvöld virðist „hafa gleymt að hafa í huga þau skaðlegu áhrif sem þessar aðgerðir geta haft á íslensk fyrirtæki sem munu mörg hver t.d. neyðast til að kaupa kolefniseiningar og losunarheimildir fyrir tugi milljarða, þrátt fyrir að losun gróðurhúsalofttegunda sem hlutfall af verðmætasköpun sé hvergi minni en hér á landi.

Það er þó kannski engin furða að einkageirinn hafi gleymst þegar haft er í huga að starfshópurinn sem setti áætlunina saman er eingöngu skipaður ríkisstarfsmönnum.

Annað sem vakti athygli hrafnanna var að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði frá því að landsmarkmið Íslands væru umfram alþjóðlegar skuldbindingar.“

Í fyrradag skilaði starfshópur Bjarna undir stjórn Brynjars Níelssonar skýrslu um ráð gegn gullhúðun EES-gerða. „Næst á dagskrá hjá hópnum hlýtur því að vera að fara ofan í saumana á gullhúðun alþjóðlegra skuldbindinga af hálfu stjórnvalda hér á landi.“