Norður
♠ 107
♥ ÁG843
♦ ÁG9
♣ ÁD7
Vestur
♠ G964
♥ 7
♦ D6
♣ G108632
Austur
♠ D8532
♥ 10
♦ 87542
♣ K5
Suður
♠ ÁK
♥ KD9652
♦ K103
♣ 94
Suður spilar 6♥.
„Boltinn gengur hratt og örugglega upp völlinn en svo klikkar allt á síðustu snertingunni.“ Fuglarnir horfa meira á fótbolta en BBO þessa dagana og það litar orðfærið. Hér hefur sagnhafi í 6♥ „spilað hratt upp völlinn“ en brennt af fyrir opnu marki í lokin. Útspilið er tromp.
Suður tók ♠ÁK og spilaði svo laufníu með því hugarfari að endaspila austur. Það gengur ef austur á ♣G10 eða ef vestur „gleymir“ að leggja á níuna. En vestur gleymdi engu og lét tíuna – drottning, kóngur og lauf til baka. Sagnhafi trompaði þriðja laufið í rannsóknarskyni og sá að vestur hafði byrjað með sexlit. Þar með var íferðin í tígulinn ráðin og vestur fékk slag á drottninguna aðra. Einn niður.
Feilskotið var svíningin í laufi. Nákvæmara var að taka á ás, fara heim á tromp og spila laufi á drottningu.