Ian McKellen
Ian McKellen
Enski leikarinn Ian McKellen féll fram af sviðinu í Noel Coward-leikhúsinu í London í byrjun vikunnar, þar sem hann var að leika í leikritinu Player Kings. Segir í frétt á vef BBC að leikarinn sé hress, þrátt fyrir óhappið

Enski leikarinn Ian McKellen féll fram af sviðinu í Noel Coward-leikhúsinu í London í byrjun vikunnar, þar sem hann var að leika í leikritinu Player Kings. Segir í frétt á vef BBC að leikarinn sé hress, þrátt fyrir óhappið.

McKellen er 85 ára en slær ekki slöku við í leiklistinni. Mun hann hafa æpt af sársauka og hrópað á hjálp. Stökk þá starfsmaður leikhússins til og kom honum til aðstoðar. Óhappið átti sér stað í atriði þar sem McKellen tekst á við mótleikara. Mun honum hafa skrikað fótur. Þar sem stöðva þurfti sýninguna og flytja leikarann á sjúkrahús var ekki annað í boði en að aflýsa henni.

Talsmaður leikhússins greindi síðar frá því að leikarinn yrði fljótur að ná sér og væri brattur, þrátt fyrir óhappið.